Skerið rabarbarann í bita, setjið í eldfast mót og blandið sykrinum saman við. Brytjið súkkulaðið gróft og dreifið því yfir rabarbarann. Hnoðið saman hveitinu, sykrinum og smjörinu. Myljið deigið ofan á rabarbarann og dreifið möndluspænin-um yfir (ef vill). Bakið við 175- 200°C í 20-30 mín. Berið fram volgt með ís eða þeyttum rjóma.
|