Smyrjið 4 eldfastar skálar, 5-6 cm djúpar og 8 cm í þvermál, með smjöri og stráið sykur í þær. Hitið ofninn í 175°C. Brjótið súkkulaðið í bita. Hitið rjómann gætilega og bræðið súkkulaðið í honum. Hrærið í með sleikju þar til kominn er mjúkur massi. Setjið korninn úr vanillustönginni saman við súkkulaðimassann. Hrærið eggjarauðurnar saman við, eina í senn. Stífþeytið eggjahvítur og sykur ásamt sítrónusafanum. Setjið ¼ af eggjahvítumassanum saman við súkkulaðið og blandið síðan súkkulaðimassann rólega saman við afganginn af eggjahvítunum. Blandan á að vera létt og loftkennd. Setjið hana í eldföstu skálarnar og bakið í 9 til 12 mínútur. Eftir þessum rétti þarf gesturinn að bíða vegna þess að hann er broinn fram um leið og hann er bakaður. Gott er að bera ís fram með souffléinu.
|