Bailey´s trufflur

Sérstaklega ljúffengar trufflur með nokkuð áberandi Bailey´s bragði sem eiga eftir að slá í gegn.
 
35stk


Innihald

1/2 dl Bailey´s líkjör
3/4 dl Rjómi
250 g Síríus Konsum Súkkulaði
Cadbury´s kakó
 

Leiðbeiningar
Setjið Bailey´s og rjóma í pott og hitið að suðu. Saxið á meðan súkkulaðið smátt og setjið í skál. Takið svo pottinn af hitanum og hellið blöndunni yfir súkkulaðið. Látið standa í 1 mínútu.
Hrærið þar til súkkulaðið er bráðið og blandan orðin samfelld og slétt. Geymið trufflublönduna í kæliskáp í 2 klukkustundir eða yfir nótt, eða þar til hún hefur stífnað.
Takið um það bil teskeið af massanum og mótið í kúlu. Veltið kúlunni upp úr sigtuðu kakói og setjið hana á plötu sem hefur verið klædd með bökunarpappír. Endurtakið þar til blandan er uppurinn. Geymið trufflunar í kæli og verið þær fram kaldar.
 
Hesthálsi 2-4, IS-110 Reykjavík, Sími 575-1800, Fax 567 4554, noi@noi.is