Dökkar súkkulaðimúffur með kaffikremi

Súkkulaðimúffur í sparifötunum. Kaffikremið gefur skemmtilegt bragð og múffurnar sjálfar taka sig einstaklega vel út á kaffiborðinu.
 
12 stk


Innihald

125 g smjör, mjúkt
165 g sykur
2 egg
190 g hveiti
1 tsk. lyftiduft
2 msk. Cadbury´s kakó
1 1/4 dl mjólk
100 g Síríus Konsum 56% súkkulaði, brætt
 
Kaffikrem:
110 g sykur
3msk. sterkt kaffi
1 stór eggjahvíta
Cadbury´s kakó, til skrauts

Leiðbeiningar
Hitið ofninn í 160°. Þeytið smjör og sykur saman í skál þar til blandan er ljós og kremkennd. Bætið eggjunum út í, fyrst öðru, svo  hinu, og hrærið vel í á milli.
Sigtið hveiti, lyftiduft og kakó yfir og hrærið vel saman við ásamt mjólk og bræddu súkkulaði. Hrærið þar til deigið er slétt og samfellt.
Klæðið múffumót með pappírsformum og skiptið deiginu í formin. Bakið í 10-12 mínútur og leyfið múffunum að kólna á kökugrind.
 
Hitið sykur og kaffi saman í potti. Hrærið í öðru hverju þar til sykurinn er uppleystur. Hitið bönduna að suðu, lækkið hitann og látið malla í 3 mínútur.
Þeytið eggjahvítuna í skál þar til hún er hvít og stíf. Hellið sykurblöndunni sman við smátt og smátt og hrærið vel í á meðan. Jafnið kreminu svo yfir múffurnar. Sigtið dálítið yfir til skrauts.
 
Hesthálsi 2-4, IS-110 Reykjavík, Sími 575-1800, Fax 567 4554, noi@noi.is