Hjá Nóa Síríus njótum við þeirra forréttinda að vinna með margar af uppáhalds vörum þjóðarinnar.
Við erum samheldinn hópur framúrskarandi starfsmanna með fjölbreytta reynslu og menntun. Við höfum pláss fyrir fleiri og hver veit - kannski erum við að leita að þér?
Jafnlaunastefna Nóa Síríusar er órjúfanlegur hluti af launastefnu fyrirtækisins. Markmiðið með stefnunni er að tryggja öllu starfsfólki jöfn laun og kjör fyrir sömu eða jafnverðmæt störf.
Saga okkar nær allt aftur til ársins 1920. Við erum stolt af því að hafa síðan þá þróast í að verða eitt af ástsælustu fyrirtækjum þjóðarinnar. Þetta hefði ekki getað gerst án árangursmiðaðs og hugrakks starfsfólks.