Síríus suðusúkkulaði kannan 2024

Þegar sumri fer að halla og kuldann leggur að landinu er fátt betra en að ylja sér við rjúkandi heitan bolla af Síríus suðusúkkulaði. Það hefur verið hefð hjá okkur að kynna nýja súkkulaði könnu á haustin og hefur hún notið mikilla vinsælda síðastliðin ár.

Í ár prýðir hana falleg handteiknuð mynd með vísan í hið ljúfa líf. Stílbragð myndarinnar ættu einhverjir af þekkja af Nóa konfekt kössum síðustu ára en það er Stella Björg hjá VORAR auglýsingastofu sem myndskreytir könnuna.

Heitt súkkulaði hefur verið á borðum íslenskra í ára raðir - ilminn þekkjum við öll og bragðið gleður unga sem aldna. Sumir halda í hefðina og nota hreint Síríus suðusúkkulaði meðan aðrir hafa prófað sig áfram með öðrum útgáfum svo sem Síríus suðusúkkulaði með karamellu og salt, en eitt er víst að bollinn yljar inn að hjartarótum.

Framundan eru mánuðir þar sem nauðsyn er að eiga suðusúkkulaði á hverju heimili, fyrir heita súkkulaðið, baksturinn eða til að stelast í með kaffinu.

Síríus könnuna færð þú sem kaupauka í næstu verslun.

Við mælum með þessum uppskriftum